Um okkur
Við erum May og Kristín, samstarf sem sameinar reynslu, sköpun og árangur
May er áhrifavaldur á samfélagsmiðlum og hefur unnið með fjölbreyttum fyrirtækjum. Hún þekkir trendin, hefur gott auga fyrir útliti og efni og veit hvað virkar í raun. Hún kemur með sýnina, hugmyndirnar og sköpunina sem fær vörumerki til að skera sig úr.
Kristín er starfandi markaðsstjóri og sinnir markaðssetningu fyrir fyrirtæki. Hún fylgist náið með þróun og trendum á samfélagsmiðlum, kann að greina hvað hentar hverju vörumerki og hvernig efni á að byggja upp til lengri tíma. Hún er skipulögð, nákvæm og sterk í plönun og framkvæmd og sér til þess að allt sé á sínum stað og verkefni unnin faglega frá A–Ö.
Saman myndum við jafnvægi milli hugmynda og framkvæmdar, sköpunar og skipulags. Við elskum að kynnast nýju fólki, takast á við fjölbreytt verkefni og ný tækifæri og hjá okkur er alltaf gott andrúmsloft og gaman í vinnunni.
